Haustfundur Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík verður haldinn þriðjudaginn 21.september klukkan 20:00.
Við hvetjum alla félaga til að koma á haustfundinn, sýna sig og sjá aðra.
Haustfundur Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík verður haldinn þriðjudaginn 21.september klukkan 20:00.
Við hvetjum alla félaga til að koma á haustfundinn, sýna sig og sjá aðra.
Björgunarsveitir af Svæði 1 voru kallaðar út í dag 9.9.10, til leitar að 17 ára stúlku sem saknað var í Grafarvogi. Stúlkan fannst síðan heil á húfi um einum og hálfum tíma eftir að útkall barst. Ellefu félagar úr FBSR, þar af 4 á hjólum, komu að leitinni.
Nú er vetrardagskráin komin á fullt skrið. Nýafstaðnar nýliðakynningar gegnu vel og skiluðu flestir sér á fyrsta námskeið fyrsta árs nýliða um búnað á fjöllum sem Óli hélt síðastliðin laugardag. Nýliðar á öðru ári skelltu sér inn í Þórsmörk um helgina þar sem Atli Þór bleytti vel í þeim í Krossánni í þverun straumvatna. Skemmst er frá því að segja að allir viðstaddir skemmtu sér konunglega í öskudrullugri ánni og komu heilir heim. Myndir frá þverun straumvatna má sjá á eftirfarandi slóð:
http://picasaweb.google.com/david.karna/20100903FBSRInVerunStraumvatna#
Hefur þú hugleitt að snjór geti verið eitthvað annað en það sem er fyrir manni í umferðinni? Gætir þú hugsað þér að stunda fjallamennsku, jeppamennsku, vélsleða eða jafnvel fallhlífastökk? Ert þú þessi týpa sem gætir hugsað þér að vera til taks þegar aðrir eru í neyð? Ert þú 18 ára á árinu eða eldri? Kannski áttu þá erindi til okkar!
Nýliðakynningar Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík verða haldnar þriðjudaginn 31. ágúst og fimmtudaginn 2. september kl. 20.00 í húsnæði sveitarinnar við Flugvallarveg.
Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík er 60 ára í ár. Í tilefni af afmælinu stendur mikið til. Ævintýrið byrjar á Menningarhátíð Reykjavíkurborgar laugardaginn 21. ágúst n.k. milli kl. 13:00 og 18:00.
Þá mun verða opið hús fyrir almenning miðsvæðis í aðalstöðvum sveitarinnar við Flugvallarveg. Þar munu sveitarmenn taka á móti gestum og gangandi og sína þeim búnað, spjalla um skemmtilegt starf sveitarinnar og um svaðilfarir á fjöllum. Öll svið sveitarinnar verða með kynningu: Fjallasvið, bílasvið, beltasvið, leitarsvið, sjúkrasvið, fallhlífasvið og síðast en ekki síst lávaraðarnir sem munu kynna sögu sveitarinnar. Félagar sveitarinnar munu líka vera í samstarfi við Norrænt kóramót í Reykjavík en kórarnir 60 njóta aðstoðar Flugbjörgunarsveitarinnar við rötun með því að halda merki sveitarinnar á lofti til leiðbeiningar fyrir kórfélaga. Þá munu sveitarmenn setja upp björgunarfalhllíf í byggingarkrana Eyktar sem stendur á gamla Nýja Bíós reitnum á gatnamótum Lækjargötu og Bankastrætis. Sveitarmenn munu standa undir fallhlífinni og ræða við gesti og gangangi um fjallamennsku, fallhlífarstökk og frækilegar björgunaraðgerðir. Komið í heimsókn, hittið okkur, fáið ykkur kaffi og vöfflu, hlustið á kórana sem syngja hjá okkur og síðast en ekki síst: Verðið traustir félagar okkar!
Aðalfundur FBSR var haldinn 27.maí 2010. Fundurinn var vel sóttur en alls sátu hann hátt í 70 félagar ásamt nýliðum. Fyrir utan venjuleg aðalfundastörf voru ýmis mál rædd undir liðnum Önnur mál og fundi var ekki slitið fyrr en rétt fyrir miðnætti. Á fundinum gengu 15 mjög efnilegir nýliðar inn í sveitina.
Elsa Gunnarsdóttir mun áfram sinna formennsku sveitarinnar. Stefán Þór Þórsson, Elsa Særún Helgadóttir og Jón Svavarsson sitja áfram í stjórn á komandi starfsári. Ásgeir Sigurðsson, Guðbjörn Margeirsson og Guðmundur Arnar Ástvaldsson gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og þakkar sveitin þeim vel unnin störf. Þeirra í stað koma nýjir inni í stjórn Marteinn Sigurðsson, Agnes
Svansdóttir og Magnús Þór Karlsson.
Aðalfundur Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík verður haldinn fimmtudaginn 27.maí nk. kl. 20.00.
Dagskrá aðalfundar:
1. Formaður setur fund.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
3. Skýrsla stjórnar og umræður um hana.
4. Endurskoðaður rekstrar og efnahagsreikningur 2009, samþykktur af félagslega kjörnum endurskoðendum og umræður um hann.
5. Inntaka nýrra félaga.
6. Hlé – Kaffiveitingar á vegum kvennadeildarinnar, kr. 1.000 (muna að koma með pening)
7. Kosning formanns (til eins árs).
8. Kosning tveggja meðstjórnenda (árlega til tveggja ára).
9. Kosning tveggja varastjórnenda (til eins árs).
10. Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara.
11. Önnur mál.
Við hvetjum alla félaga til að mæta á aðalfundinn og hafa áhrif á þær ákvarðanir sem þar verða teknar.
Stjórnin
Dr. Helgi Björnsson ætlar að halda fyrir sveitina fyrirlestur um jökla landsins á Flugvallarvegi þriðjudaginn 18. maí klukkan 20. Eldri félagar eru sérstaklega velkomnir og hvattir til að mæta.
Flugbjörgunarsveitin í Reyjavík var boðuð út nú í morgun, ásamt öðrum sveitum á svæði 1, til innanbæjarleitar í Reykjavík. Maður fór frá heimili sínu í gærkvöldi kl 21 og hafði ekki skilað sér í morgun.