Aðalfundur FBSR var haldinn í húsakynnum FBSR á Flugvallarvegi 20. maí s.l.
Á aðalfundinum var ný stjórn FBSR skipuð en hana skipa Jóhannes Ingi Kolbeinsson formaður, Björn Víkingur Ágústsson varaformaður, Þorsteinn Ásgrímsson Melén gjaldkeri, Kristbjörg Pálsdóttir ritari, Margrét Aðalsteinsdóttir, Guðmundur Arnar Ástvaldsson og Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir meðstjórnendur.
Á fundinum voru teknir inn 17 nýir félagar í sveitina en þeir eru:
Aldís Jóna Haraldsdóttir
Ármann Ragnar Ægisson
Björgvin Viktor Þórðarson
Elísabet Vilmarsdóttir
Franz Friðriksson
Guðjón Kjartansson
Inga Lara Bjornsdottir
Jenna Lilja Jónsdóttir
Lilja Steinunn Jónsdóttir
Otto H.K. Nilssen
Samúel Torfi Pétursson
Silja Ægisdóttir
Svana Úlfarsdóttir
Sveinbjörn J. Tryggvason
Tryggvi Jónasson
Úlfar Þór Björnsson Árdal
Þorkell Garðarsson
og eru þau boðin hjartanlega velkomin. Auk þess voru ýmsar lagabreytingar á lögum FBSR samþykktar.
Aðalfundarboð FBSR
Aðalfundur FBSR verður haldinn 20. maí 2015 klukkan 20:00 í húsakynnum FBSR að Flugvallarvegi.
Dagskrá aðalfundar:
- Formaður setur fund.
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar og umræður um hana.
- Endurskoðaður rekstrar- og efnahagsreikningur 2014-2015, samþykktur af félagslega kjörnum endurskoðendum og umræður um hann.
- Inntaka nýrra félaga.
- Hlé – Kaffiveitingar á vegum Kvennadeildar FBSR, kr. 1.500 (í reiðufé).
- Lagabreytingar, umræða og kosning.
- Kosning stjórnar.
- Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara.
- Kosning þriggja félaga í valnefnd heiðursveitinga.
- Önnur mál.
Breytingartillögur á lögum Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík
Tillögur að lagabreytingum bárust frá stjórn FBSR. Tillögunum má skipta í tvennt:
- Í fyrsta lagi leggur stjórn til nýja uppsetningu á lögum FBSR þar sem ekki verður um neina innihaldsbreytingu á lögum FBSR að ræða. Ástæða þessa er til að einfalda og skerpa á uppsetningu núgildandi laga m.a. með því að sameina greinar sem eiga saman og einfalda orðalag. Heildarendurskoðun má finna hér.
- Í öðru lagi leggur stjórn FBSR til ýmsar breytingar á lögum sveitarinnar sem bæði taka til nýrra lagagreina og breytinga á fyrri lagagreinum. Auk þess er sérstaklega lögð fram breytingartillaga um fjölgun stjórnarmanna. Breytingartillögurnar má finna hér og sérstaka tillögu um fjölgun stjórnarmanna hér.
Núgildandi lög FBSR má finna hér. Lög FBSR.
Kynningu á heildarendurskoðun og breytingartillögum má finna hér.
Sveitarfundur
Sveitarfundur verður haldinn 13. maí n.k. klukkan 20:00 í húsakynnum FBSR við Flugvallarveg þar sem m.a. verður farið nánar yfir innihald lagabreytingartillagnanna. Það er von stjórnar að þeir sem vilja kynna sér breytingatillögurnar sjái sér fært að mæta og að umræðan sem þar skapast geti flýtt fyrir afgreiðslu á aðalfundi.
Boðun á aðalfundi
Stjórn FBSR vekur athygli á því að á síðasta aðalfundi FBSR var samþykkt breyting á lögum þess efnis að aðalfundur er löglega boðaður ef boðað er til hans með tölvupósti, og með tilkynningu á heimasíðu FBSR með minnst 5 daga fyrirvara.
Framvegis verður aðalfundur FBSR boðaður í samræmi við þessa breytingu og því verður ekki sendur bréfpóstur á félaga FBSR nema þeir sérstaklega óski eftir því. Óskir um bréfpóst vegna boðunar aðalfundar svo og upplýsingar um tölvupóstföng, sem senda skal fundarboð á, skulu berast stjórn á tölvupóstfangið [email protected].
Við hvetjum félaga til að mæta á aðalfundinn og hafa áhrif á þær ákvarðanir sem þar verða teknar.
Stjórnin.
Snjóflóð í Vífilsfelli
Alls 26 félagar í FBSR mættu í útkall vegna snjóflóðs í hlíðum Vífilsfells í gærkvöldi. Fyrsti bíll fór úr húsi 6 mínútum eftir að útkall barst og voru 14 manns lagðir af stað í útkallið áður en afturköllun var send út stuttu seinna. Sem betur fer reyndist snjóflóðið gamalt og var því aðstoð afturkölluð um 30 mínútum síðar.
Óveðursútkall
Tuttugu og fimm manns á fimm bílum Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík tóku þátt í aðgerðum vegna óveðurs sem gekk yfir höfuðborgarsvæðið í dag, þar af þrír í húsi og einn í landsstjórn. Fjölbreytt verkefni voru leyst þar sem ýmislegt gekk á og voru tveir bílar sveitarinnar laskaðir í lok dags, brotin rúða og skökk hurð.

Landmannalaugar 2015
Rúmlega 50 manna hópur frá Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík hélt í árlega Landmannalaugaferð síðustu helgi. Stór hluti fór á gönguskíðum, en einnig voru þrír sleðar með í ferð og fjórir jeppar. Farið var úr húsi föstudagskvöldið og lagði skíðagöngufólkið af stað frá veginum austan af Sultartangastöð. Var skíðað austur fyrir Tagl þar sem tjaldbúðir voru settar upp, en nokkur hríð var um kvöldið. Jeppa- og sleðafólk hélt á meðan inn í Laugar.
Á laugardaginn var fullt af allskonar hjá öllum. Gönguskíðafólk hélt áfram og var stefnan sett á Laugar, meðan jeppa- og sleðafólk keyrði um Fjallabak þvert og endilangt. Nokkrir tóku sig svo til og gengu upp og skíðuðu svo niður Bláhnúk. Slegið var upp veislu um kvöldið og grillað í mannskapinn og að vanda var svo fjölmennt í lauginni eftir matinn. Á sunnudaginn var haldið í átt að Sigöldu og keyrt í bæinn.
Allt í allt frábær ferð þar sem margir prófuðu gönguskíði í fyrsta skipti í lengri ferð, ökumenn fengu góða æfingu og hægt var að njóta Fjallabaksins stóran hluta ferðarinnar vegna prýðisskyggnis og góðs skíðafæris.
Myndir: Magnús Andrésson og Ingvar Hlynsson
- Veðrið lék við hópinn á laugardaginn
- Hluti af gönguskíðahópnum
- Það fór að létta til á Laugardaginn.
- Tjaldað aðfaranótt laugardags við Tagl
- Matti leiddi hópinn ásamt Arnaldi á sunnudaginn að Sigöldu.
- Stefán Már og Arnar að prófa nýju tækin.
- Tommi fékk skutl með Steinari sem blés ekki úr nös þrátt fyrir smá aukna þyngd í eftirdragi.
- Fjölmennt í Laugum.
- Ingvar var vinsamlegast beðinn um að fara ekki hraðar en 40km/klst
- Smá hríð á föstudagskvöldið stoppaði mannskapinn ekki.
Þrettándasala flugelda
Búnaðarbasar Ísalp og FBSR
Fimmtudaginn 18. september verður hinn árlegi búnaðarbasar Ísalp og FBSR haldinn í húsnæði Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík. Fjörið hefst klukkan 20:00, en þeim sem vilja selja er bent á að mæta hálftíma fyrr og stilla upp tímanlega fyrir opnun. Allir velkomnir, ekki missa af þessu!
Nýliðakynningar 2014
Hefur þú áhuga á að starfa með sterkri björgunarsveit og vilt kynnast fólki sem hefur áhuga á útivist og öðru sem tengist björgunarmálum?
Nýliðaprógram Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík verður kynnt á tveimur fundum á næstunni. 28. ágúst og 1. september klukkan 20:00. Fundirnir verða í húsnæði FBSR við Flugvallaveg (milli Hertz og Hótel Natura).
Inntaka nýrra félaga
Á aðalfundi þann 20 maí sl. gengu til liðs við sveitina 14 nýir félagar þ.e.a.s. hópur þeirra nýliða sem
lokið hefur sínu öðru ári í nýliðaþjálfuninni.
Þessi öflugi hópur er:
- Arianne Gaehwiller
- Ásdís Sveinsdóttir
- Bjartur Týr Ólafsson
- Egill Júlíusson
- Emily Lethbrigde
- Grétar Guðmundsson
- Guðmundur Jóhannesson
- Haukur Elís sigfússon
- Hákon Gíslason
- Illugi Örvar Sólveigarson
- Jón Trausti Bjarnason
- Karl Birkir Flosason
- Októvía Edda Gunnarsdóttir
- Unnur Eir Arnardóttir
Við bjóðum þau hjartanlega velkomin.
Ný stjórn tekur til starfa
Á aðalfundi FBSR þann 20. maí var ný stjórn kosin sem mun starfa næsta starfsár. Jóhannes Ingi Kolbeinsson var endurkjörinn formaður og þá var Kristbjörg Pálsdóttir endurkjörin í stjórnina til tveggja ára. Jón Smári Jónsson var auk hennar kosinn til tveggja ára og þau Björn Víkingur Ágústsson og Margrét Aðalsteinsdóttir voru kosin varamenn til eins árs. Fyrir í stjórn voru þeir Þorsteinn Ásgrímsson og Björn Jóhann Gunnarsson, en þeir voru á síðasta ári kosnir til tveggja ára.
Fyrsti stjórnarfundur var haldinn þriðjudaginn 27. maí og skipti þá stjórn með sér verkum. Engar breytingar voru gerðar á hlutverkum þeirra sem fyrir voru í stjórn, en Jón Smári tók við meðstjórnendahlutverkinu. Frekari upplýsingar um stjórn, hlutverk og sviðstjóra má sjá á þessari síðu.
Fundargerð aðalfundar og fyrsta stjórnarfundar munu koma inn á d4H fljótlega.
















