Kynning á nýliðaþjálfun Flugbjörgunarsveitarinnar Reykjavík verður haldin mánudaginn 31. ágúst kl. 20 og endurtekin þriðjudaginn 1. september kl. 20. Kynningin verður í húsnæði FBSR að Flugvallarvegi 7.
Skráning í nýliðaþjálfun FBSR
Þjálfunin tekur tvo vetur, september-maí 2026-2028. Nýliðar læra á þeim tíma að bjarga sjálfum sér og öðrum við ýmsar aðstæður.
Meðal námsgreina eru ferðamennska, rötun, GPS, fyrsta hjálp, fjarskipti, fjallamennska, fjallabjörgun, snjóflóð, straumvatnsbjörgun, leitartækni og fleira. Að auki taka nýliðar virkan þátt í ýmsu öðru starfi sveitarinnar, svo sem fjáröflunum.
Aldurstakmark er 18 ár.
- Skráningareyðublað
- Drög að dagskrá nýliðaþjálfunar 2026-2027
- Netfang nýliðaþjálfara: [email protected]
- Netfang nýliðaráðs: [email protected]
Esjuganga
Þau sem hyggjast skrá sig í nýliðaþjálfun eru hvött til að mæta í Esjugöngu föstudaginn 4. september kl. 19 eða laugardaginn 5. september kl. 14. Þar er hægt að hitta þjálfara og fá tilfinningu fyrir því sem koma skal. Mæting er við Esjustofu 15 mínútum fyrir tímann, lagt verður stundvíslega af stað.

