Í tilefni af afmælishátíð FBSR um helgina var haldin þrautakeppni fyrir félagsmenn á laugardaginn. Meðal annars þurfi að síga í gryfjunum í Öskjuhlíð, hita vatn á sem skemmstum tíma, sýna fram á góða rötunar- og korta þekkingu og gera allskonar þrekæfingar.
Keppnin, sem nefndist Hungurleikarnir, heppnaðist mjög vel og var skipulag þeirra Óla Magg, Billa, Bjössa, Steinars og Viktors til fyrirmyndar. Keppendur voru 21, en þar sem veitt eru aukaverðlaun fyrir stíl í keppninni voru búningar í skrautlegra lagi. Er það von FBSR að engum vegfaranda hafi verið bylt við í morgunsárið á laugardaginn þegar hann mætti síðhærðum víkingum, sjóræningjum, skátum eða öðrum uppáklæddum einstaklingum.
Gullskóinn, verðlaun fyrir besta árangurinn fékk liðið Víkingarnir
Fagurkerann, verðlaun fyrir besta stílinn fékk liðið The gang
Önnur lið í keppninni má sjá hér:






Í dag heldur Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík upp á 65 ára afmæli sitt, en það var í nóvember 1950 sem sveitin var formlega stofnuð. Kom það til í kjölfar björgunarinnar á áhöfn flugvélarinnar Geysis á Vatnajökli í september það sama ár. Voru stofnfélagar 29 og fyrsti formaður var kjörinn Þorsteinn E Jónsson flugmaður.












Halli Kristins, félagi FBSR til fjölda ára, hélt í júní á fjallið Muztagh Ata í Kína þar sem hann eyddi mánuði í að glíma við þetta tæplega 7.600 metra háa fjall. Í ferðinni setti Halli Íslandsmet þegar hann varð sá einstaklingur sem hefur skíðað hæst allra Íslendinga. Í kvöld mun hann bjóða félögum FBSR upp á stórskemmtilega og fróðlega frásögn með flottum myndböndum af þessari frábæru ferð. Lesa má nánar um ferðina á 

