Bíll ofan í sprungu á Hofsjökli

Um hálf fjögur leytið barst ósk um að undanfarar gerðu sig klára í þyrlu. Bíll hafði fallið ofan í sprungu í Hofsjökli. Varnarliðsþyrlurnar höfðu þá verið sendar af stað, ásamt einni þyrlu af dönsku herskipi sem stödd var við landið.

 

Undanfararnir voru beðnir um að bíða klárir ef þyrla Landhelgisgæslunnar færi í loftið og yrðu þeir þá sendir með henni. Hlutverk þeirra yrði að fylgja lækni, vera honum innan handar og sjá til þess að hann kæmist ofan í sprunguna ef með þyrfti. Það fór svo að þyrlan fór aldrei af stað þar sem björgunarlið sem fyrst var sent á slysstað gat valdið verkefninu án frekari aðstoðar.

Rétt eftir klukkan 18 barst útkall frá Svæðisstjórn þar sem beðið var um jeppa og snjóbíla til að fara á staðinn og fóru frá okkur 9 menn á tveimur jeppum. Þeir voru ýmist í verkefnum eða á bið við stjórnsstöð í Hrauneyjum og komu aftur til Reykjavíkur um klukkan 2:30 í nótt.

Eins og fram hefur komið í fréttum þá lést annar þeirra sem í bílnum voru og hinn liggur nú þungt haldinn á spítala. Viljum við í Flugbjörgunarsveitinni votta þeim sem um sárt eiga að binda samúð okkar.

Meðfylgjandi mynd er úr myndasafni og er ekki af slysstað.

Árshátíð Flugbjörgunarsveitarinnar – 55 ára afmælishátíð 1950 – 2005

Afmælishátíð Flugbjörgunarsveitarinnar var haldin í Skíðaskálanum í
Hveradölum þann 18. febrúar 2006. Þrátt fyrir að vera dálítið seint á
ferðinni heppnaðist hún með miklum ágætum og um 70 gestir nutu góðs
matar, skemmtiatriða og síðast en ekki síst góðs félagsskapar. Í lokin
var svo slegið upp balli og Sælusveitin sá um fjörið.

 

Samkvæmt venjunni á stórafmælum voru veittar orður til þeirra
félagsmanna sem starfað hafa um árafjöld í Flugbjörgunarsveitinni. Þeir
sem hlutu að þessu sinni brons orður voru Ásmundur R. Ívarsson,
Bergsteinn Harðarson, Frímann Andrésson, Gérard Chinotti, Heiða B.
Ingadóttir, Jón Sigfússon, Jón Þorgrímsson, Magnús Andrésson, Magnús
Sigurðsson, Ottó E.Guðjónsson og Óli Haukur Ólafsson.

Þeir sem hlutu silfur orður voru Eðvarð Williamsson, Freyr
Bjartmarz, Grétar Pálsson, Guðmundur Gunnarsson, Jónas Guðmundsson,
Magnús Þór Karlsson, Ólafur Þór Júlíusson, Pétur Kristjánsson, Sigurður
Sigurðsson, Vilberg Sigurjónsson, Þór Kjartansson, Þórarinn Ólafsson og
Þráinn V. Þórsson

Gull orður hlutu að þessu sinni Snorri Hrafnkelsson, Grétar F. Felixson, Jón Gunnarsson og Kristjáns Eyfjörð.

 

Myndirnar hér að neðan tók Jón Svavarsson

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


 

 

Ásgeir Sigurðsson

Fullt nafn: Ásgeir Sigurðsson

Gælunafn: Geiri Pitt

Aldur: 27

Gekk inn í sveitina árið: 2001

Atvinna/nám: Bifvélavirki/sveinspróf í bifvélavirkjun

Fjölskylduhagir: Giftur og á einn skæruliða

Gæludýr: 3 fiskar

Hópastarf og annað starf innan sveitarinnar: Bílahópur/ Flokkstjóri tækjaflokks

Áhugamál: Útivera, jeppamennska,

Uppáhalds staður á landinu: Vestmannaeyjar, sérstaklega um mánaðarmótin júlí-ágúst

Uppáhalds matur: Kalkúnn með feitri fyllingu

Ef þú ættir eina ósk, hver yrði hún? ég myndi óska mér fleiri óskir

Æðsta markmið: fjölga í fjölskyldunni og gera alltaf betur en ég hef gert.

Eftirminnilegasta augnablikið úr starfinu: Það er allt eftirminnilegt sem ég hef gert í starfinu.

Ásgeir Sigurðsson

 

Fullt nafn: Ásgeir Sigurðsson   

Gælunafn: Geiri Pitt

Aldur: 27

Gekk inn í sveitina árið: 2001

Atvinna/nám: Bifvélavirki/sveinspróf í bifvélavirkjun

Fjölskylduhagir: Giftur og á einn skæruliða

Gæludýr: 3 fiskar

Hópastarf og annað starf innan sveitarinnar: Bílahópur/ Flokkstjóri tækjaflokks

Áhugamál: Útivera, jeppamennska,

Uppáhalds staður á landinu: Vestmannaeyjar, sérstaklega um mánaðarmótin júlí-ágúst

Uppáhalds matur: Kalkúnn með feitri fyllingu

Ef þú ættir eina ósk, hver yrði hún? ég myndi óska mér fleiri óskir

Æðsta markmið: fjölga í fjölskyldunni og gera alltaf betur en ég hef gert.

Eftirminnilegasta augnablikið úr starfinu: Það er allt eftirminnilegt sem ég hef gert í starfinu.


Ásgeir á Land Rover jeppa sem hefur fengið að aka ófáa kílómetrana upp til
fjalla.


Hleypt úr á FBSR-2


Auðvitað nota menn hvert tækifæri sem gefst til að flagga því hvaða bíll er
bestur



Það er engin almennileg jeppaferð án tertu


Ásgeir og Arnar Bergmann


 

Leit að dreng í byggð

Sérhæfðir
leitarhópar voru kallaðir út í dag til að leita að dreng sem ekki hafði
skilað sér eftir skólasund. Um fimmtíu manns á svæði eitt
(höfuðborgarsvæðinu) tóku þátt í leitinni og þ.á.m einn bíll með sex
leitarmönnum frá Flugbjörgunarsveitinni. Ekki hafði leit staðið yfir í
langan tíma þegar viðkomandi kom fram heill á húfi.

Björgun snjótroðara á Langjökli – Janúar 2006

Snjótroðara bjargað af Langjökli 

Fimmtudaginn fimmta janúar 2006 festist snjótroðari í krapapytti í
jökulrönd Langjökuls, skammt frá Jaka.  Beðið var um aðstoð við að losa hann og koma honum niður. Farið var á laugardeginum.

Magnús Þór og Guðgeir fóru með
snjóbílinn og Maggi Andrésar, Jón Sigfús, Danni og Halldór Magg fóru á
FBSR 4. Farið var úr bænum kl. 6:30 og keyrt upp að Jaka. Mikið hafði
snjóað sólarhringinn áður og stóð rétt svo pústið á snjótroðaranum upp
úr snjónum þegar að honum var komið. Seinna meir kom annar snjótroðari
á svæðið frá Heiðari í Varmahlíð. Snjóbíllinn og troðarinn sáu um að
ýta mesta snjónum frá, að ógleymdum ófáum skóflutökum hjá okkur og
mönnum frá Fjallamönnum hf.

Þegar búið var að moka vel frá bílnum sá átta hjóla MAN trukkur á
50" dekkjum frá Activity Group um að kippa í troðarann og losnaði hann
um tvö leytið. Eftir vel heppnaða björgun á troðaranum var tekinn smá
rúntur á FBSR 4 upp á hábungu Langjökuls.

Myndir og texti: Magnús Andrésson

 


Svona var aðkoman að troðaranum

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Björgunarsveitarfólk hjá Sirrý

Björgunarsveitarfólk hjá
Sirrý


21. desember 2005

Flugbjörgunarsveitinni hlaust sá heiður að vera í lokaþætti hinna vinsælu þáttaraðar Fólk með Sirrý, sem hefur gengið sleitulaust á Skjá einum um árabil. Tuttugu fulltrúar frá okkur mættu í sjónvarpssal til að spjalla við Sirrý, auk um tuttugu annarra gesta.

Spjallið snerist aðallega um hvernig það er að vera í björgunarsveit, við hverju megi búast í starfinu og af hverju fólk fórnar frítíma sínum í sjálfboðaliðastarf í almannaþágu. Eyrún Pétursdóttir og Jónas Guðmundsson sátu í sófanum hjá Sirrý og einnig talaði hún við fólk úti í sal. Jónas og Eyrún mættu svo með þrjá Troðna flugeldapakka. Nöfn viðstaddra gesta voru dregin úr potti og þau heppnu fengu fjölskyldupakkana að gjöf. Sirrý var sjálf með veglega gjöf sem var líka dregin út og það var enginn annar en Jón okkar Svavars sem var svo heppinn að fá þennan líka flotta dekurpakka frá Bláa lóninu með boddí lósjón og allt. Að auki fengu allir viðstaddir gestir miða í Bláa lónið.

Þetta var stórgaman, en við skulum ekki hafa fleiri orð um það heldur láta myndirnar tala sínu máli. Það var hinn heppni og hæfileikaríki félagi okkar Jón Svavarsson sem tók þessar myndir.

Skoða má þáttinn á vef Skjás eins með því að smella hér

 


Eyrún í förðun

 


Jónas og Addý ræða málin

 

 


Föngulegur flubbahópur af öllum kynslóðum var í salnum


Þá var komið að happdrættinu. Í vinning var auðvitað flugeldapakki

 

 


Ekki laust við að það sé nokkur svipur með þeim Addý og Sirrý

 

 

Leit að pilti í Reykjavík

Í gær og í dag var ákaft leitað að 18 ára pilti sem saknað var. Í gær
var óskað eftir sérhæfðum leitarhópum og var leit haldið áfram í morgun
í birtingu. Pilturinn fannst svo látinn um hádegisbil við Nauthólsvík.

Í gær óskaði Svæðisstjórn eftir aðstoð sérhæfðra leitarhópa til að
vinna úr vísbendingum og fór fjögurra manna hópur frá okkur af stað
mjög fljótlega til að hraðleita á líklegum stöðum í Öskjuhlíð, og leita
frekari vísbendinga fyrir myrkur. Bátaflokkar og kafara leituðu á meðan
á sjó. Þegar myrkvaði var svæðinu í Öskjuhlíð og næsta nágrenni skipt
upp í svæði sem voru fínkembd með leitarljósum. Þegar búið var að
fínkemba svæðin, án árangurs, var leit frestað fram til morguns.

Í birtingu í morgun voru svo sömu svæði leituð aftur auk þess sem
fjörur voru gengnar á stærra svæði, kafar og bátar leituð á og í sjó og
þyrla Landhelgisgæslunnar leitaði úr lofti.

Það var þyrla Landhelgisgæslunnar sem fann piltinn í Nauthólsvík um hádegisleytið og var hann þá látinn.

Flugbjörgunarsveitin vill votta aðstandendum og fjölskyldu drengsins samúð sína.

Meðfylgjandi mynd er tekin af leitarhópnum á æfingu. 

 

Farþegaþota með bilaðan hreyfil

Rétt fyrir klukkan þrjú í gær barst útkall vegna neyðarástands í
farþegaþotu á flugi yfir Atlantshafi. Um borð voru 281 farþegi og
áætlaður lendingartími kl. 15:56. Björgunarsveitir voru settar í
viðbragðsstöðu samkvæmt viðbragðsáætlun.

Um var að ræða tveggja hreyfla Airbus þotu frá Air Canada sem var á
leið frá Þýskalandi til Kanada. Slokknað hafði á öðrum hreyflinum og
bað flugstjórinn um nauðlendingu í Keflavík. Lendingin tókst
giftusamlega og engan farþega skaðaði.

Meðfylgjandi mynd er tekin á æfingu á viðbragðsáætlun fyrir
Keflavíkurflugvöll í nóvember í fyrra og sýnir neyðarbíla í
viðbragðsstöðu.

 

Hell Weekend 2005

Hell Weekend 2005

rn

Eins og lög gera ráð fyrir er ekki margt sem segja má opinberlega um HellrnWeekend, né heldur má birta mikið myndefni. Þó eru hér birtar nokkrar myndirrnaf hluta þeirra sem hjálpuðu til við framkvæmdina og fá þau öll hér um leiðrnkærar þakkir fyrir hjálpina.

rn

 Allir sem komu að þessu eiga frábærar þakkir skildarrnfyrir. Þetta hefði ekki verið hægt á ykkar. Takk kærlega fyrir.

rn

Kær kveðja,
rnMatti Zig.
rna.k.a. Lúsifer. a.k.a Diablo

rn

 

 

rn


rnHvur djö!?
rn

rn

 

rn

 

rn