
Flugbjörgunarsveitin þakkar öllum þeim sem kaupa jólatré kærlega fyrir stuðninginn.
Jólatrjáasala Flugbjörgunarsveitarinnar hefur verið starfrækt í um 30 ár og er ein af mikilvægustu fjáröflunum sveitarinnar. Jólatrjáasalan hefst þriðjudaginn 1. desember og stendur fram að jólum. Sölustaðir okkar eru í húsnæði FBSR að Flugvallarvegi 7, Byko Breidd og í vefverslun.
Í höfuðstöðvum okkar að Flugvallarvegi 7 bjóðum við upp á kakó og piparkökur til að bæta jólaskapið og svo er aldrei að vita nema það kíki jólasveinn í heimsókn einhverja helgina.
Verið velkomin til okkar í notalega jólastemningu.
Úrval jólatrjáa
Í jólatrjáasölu Flugbjörgunarsveitarinnar er boðið upp á Nordmannsþin, stafafuru, blágreni og rauðgreni. Nordmannsþinurinn kemur frá Danmörku en íslensku jólatrén, þ.e. grenið og furan, koma frá Skógræktarfélagi Íslands og Landi og skógum.
Auk þess erum við með tröpputré, stundum nefnd pallafura, frá Skógræktarfélagi Íslands og Skógræktarfélagi Reykjavíkur.
Athugið að í Byko Breidd er aðeins seldur Nordmannsþinur og stafafura. Að Flugvallarvegi 7 er meira úrval og að auki boðið upp á greinar, jólatrésfætur, pallafuru og kerti.
Nánari upplýsingar í síma 551-2300 eða á facebook síðu FBSR.
Opnunartímar jólatrjáasölu FBSR
Flugvallarvegi 7
- Virkir dagar kl. 12-22
- Helgar kl. 10-22
Byko Breidd
- Virkir dagar kl. 12:30-19
- Laugardaga kl. 10-18
- Sunnudaga kl. 11-17
Vefverslun er allaf opin: https://flugbjorgunarsveitin.is/
Heimsending
Hægt er að óska eftir heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu gegn vægu gjaldi.
Leiðbeiningar um meðhöndlun jólatrjáa
Nordmannsþinur er innfluttur frá Danmörku, þar sem hann er ræktaður til að vera jólatré. Hann heldur barri og lit mjög vel.
Stafafura vex á Íslandi og er sívinsælt jólatré. Furan heldur vel barri og þolir vel hlýtt og þurrt inniloft.
Rauðgreni er hefðbundið íslenskt jólatré með góðri lykt og hefur þétta og fallega lögun.
Blágreni hefur fallegan blágrænan lit, heldur nálunum vel og hefur sterkar greinar.
Sitkagreni er grófgerðara en blágreni og nálar mjög hvassar.
Umhirða þar til tré er sett í fót
Óháð tegund jólatrésins er best að geyma það í netinu á skjólgóðum stað utanhúss, á svölum eða í garðinum þangað til það er sett upp. Ef það er geymt úti í nokkra daga getur borgað sig að spúla þau nokkrum sinnum með kröftugri vatnsbunu úr garðslöngu, einkum ef frostvindur er og líka um tveimur tímum áður en þau eru tekin inn. Þá sígur vel af þeim og þau koma frísk og hress í hús. Ef frost er úti er ráðlagt að láta þau þiðna hægt, t.d. í frostlausum bílskúr. Ef tréð er frosið má einnig leggja það í kalt vatn í baðkari eða láta vatn renna á það. Auðveldara er að setja tréð í jólatrésfótinn ef það er enn í netinu meðan verið er að festa það.
Tré sett í fót
Rétt áður en tréð er sett í fótinn er gott að saga aðeins, smá á ská, neðan af því. Síðan er gott að hella sjóðandi heitu vatni ofan í fótinn. Þannig opnast æðarnar í trénu og dásamlegur greniilmur berst um allt. Eftir það er ráðlegt að fylla á með köldu eða volgu vatni þannig að alltaf sé nóg vatn í fætinum. Tréð drekkur mest fyrstu dagana og þá þarf að fylgjast með að nóg vatn sé í fætinum. Aldrei má vanta vatn í fótinn því þá lokast vatnsæðar trésins aftur.
Þótt mælt sé með því að passa að alltaf sé vatn í jólatrésfætinum er rétt að taka fram að stafafura og nordmannsþinur þola betur að það vanti vatn í fótinn en grenitrén; sérstaklega er rauðgreni viðkvæmt fyrir slíku.
Þökkum stuðninginn * Gleðileg jól
Á höfuðborgarsvæðinu er einnig hægt að kaupa jólatré hjá Hjálparsveit skáta Garðabæ, Björgunarsveit Hafnarfjarðar og Hjálparsveit skáta Reykjavík. Víða um land eru björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar að selja jólatré.






