Í tilefni af afmælishátíð FBSR um helgina var haldin þrautakeppni fyrir félagsmenn á laugardaginn. Meðal annars þurfi að síga í gryfjunum í Öskjuhlíð, hita vatn á sem skemmstum tíma, sýna fram á góða rötunar- og korta þekkingu og gera allskonar þrekæfingar.
Keppnin, sem nefndist Hungurleikarnir, heppnaðist mjög vel og var skipulag þeirra Óla Magg, Billa, Bjössa, Steinars og Viktors til fyrirmyndar. Keppendur voru 21, en þar sem veitt eru aukaverðlaun fyrir stíl í keppninni voru búningar í skrautlegra lagi. Er það von FBSR að engum vegfaranda hafi verið bylt við í morgunsárið á laugardaginn þegar hann mætti síðhærðum víkingum, sjóræningjum, skátum eða öðrum uppáklæddum einstaklingum.
Gullskóinn, verðlaun fyrir besta árangurinn fékk liðið Víkingarnir
Fagurkerann, verðlaun fyrir besta stílinn fékk liðið The gang
Önnur lið í keppninni má sjá hér:






Í dag heldur Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík upp á 65 ára afmæli sitt, en það var í nóvember 1950 sem sveitin var formlega stofnuð. Kom það til í kjölfar björgunarinnar á áhöfn flugvélarinnar Geysis á Vatnajökli í september það sama ár. Voru stofnfélagar 29 og fyrsti formaður var kjörinn Þorsteinn E Jónsson flugmaður.


Fimmtudaginn 18. september verður hinn árlegi
Næstkomandi þriðjudag, 20. maí, verður aðalfundur FBSR haldinn í húsnæðis félagsins við Flugvallarveg kl 20:00. Utan hefðbundinna aðalfundarstarfa verða nýliðar sem hafa gengið í gegnum prógramm síðustu tveggja ára teknir inn sem fullgildir meðlimir og þá verður kvennadeildin með kaffi og kökur sem endranær.

