Seint í gærkvöldi var kallað út til leitar að manni sem saknað var á svæðinu í kringum Hengil og Nesjavelli. Einn bíll frá FBSR með fimm leitarmenn og einn bílstjóra fór til leitar en alls tóku 17 sveitir þátt í leitinni. Maðurinn fannst látinn seinna um kvöldið. Talið er að hann hafi orðið úti.
Greinasafn eftir: stjorn
Þota með bilaðan hreyfil
Rétt upp úr kl. 15 í dag barst útkall vegna farþegaþotu með annan af
tveimur hreyflum óvirkan. Vélin átti að öryggislenda í Keflavík með 176 farþega innanborðs.
Flugstjóra þotunnar, sem var Boeing 757 frá Continental Airlines,
tókst að gangsetja hreyfilinn rétt fyrir lendingu og lenti hún því á
eðlilegan hátt án nokkurs skaða. Útkallið var því afturkallað fljótlega
eftir lendinguna.
Mikill viðbúnaður fór af stað samkvæmt viðbragðsáætlun.
Flugbjörgunarsveitin sendi tvo bíla með 12 manns af stað. Báðir bílar
voru farnir úr húsi á innan við 20 mín. eftir að útkallið barst og voru
þá fleiri björgunarmenn á leiðinni í hús. Björgunarsveitum var stefnt
að biðsvæðinu í Straumsvík.
Myndin er fengin að láni frá fréttavef RÚV, en þar er ítarleg frétt um þennan atburð.
Drengur hrapar í Esjunni
Undanfarar voru kallaðir út í gær til að fara með
slökkviliðinu upp í Esjuhlíðar að sækja 12 ára dreng sem hafði
hrapað þar og slasast.
Drengurinn hafði verið á gangi í gilinu rétt norðan við
Þverfellshorn og varð þar fótaskortur í snjóskafli sem gjarnan vill
safnast þar upp. Hann hrapaði niður gilið og slasaðist nokkuð en
var óbrotinn. Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins fór upp fjallið á sínum
fjallbíl og sexhjóli og með í ferð voru 23 undanfarar á
björgunarsveitarbílum. Þrír þeirra gengu upp fjallið en hinir fóru á
bílum upp.
Sökum mistaka í skráningu í útkallseiningu barst útkallið
aðeins til hluta undanfarahópsins. Því mættu einungis þrír
undanfarar frá Flugbjörgunarsveitinni en úr þessu verður vitaskuld bætt
strax.
Stefán Þór Þórsson
Fullt nafn: Stefán Þór Þórsson
Gælunafn: Hr. Stefán Þór Þórsson
Aldur: 26
Gekk inn í sveitina árið: 2000
Atvinna/nám: Er verkfræðingur og vinn við innri endurskoðun
hjá Glitni.
Fjölskylduhagir: Hagi fjölskyldunar er í Hvammi við
Dýrafjörð.
Gæludýr: Átti páfagauk en hann fraus.
Hópastarf og annað starf innan sveitarinnar: Nýliðaþjálfari
B2 og eitthvað viðloðandi leitarhóp.
Áhugamál: FBSR og Lada Niva.
Uppáhalds staður á landinu: Hverasvæðið fyrir sunnan
Hrafntinnusker.
Uppáhalds matur: Knorr Napolitana og vanillubúðingur
Ef þú ættir eina ósk, hver yrði hún (bannað að óska sér fleiri óska)? Að breytingarnar á húsnæðinu væru búnar og Tindjallasel tilbúið og
næsti patti kominn og og og
Æðsta markmið: Deyja sáttur.
Eftirminnilegasta augnablikið úr starfinu: Þegar við vorum
veðurteppt í Landmannalaugum og J.K. var að segja mis viðeigandi sögur af
foreldrum sínum.
Á góðri stund með nillunum mínum í Tindfjallaseli hinu gamla
Hér er ég við byggingu á Tindfjallaseli. Takið eftir pósunni.
Kemst þú ekki inn?
Núna
er nýja lyklakerfið komið í gagnið og búið er að skipta um læsingar á
útihurðum. Nýju lyklaspjöldin, sem einnig þjóna sem
félagsskírteini, eru orðin virk og ekki er hægt að opna húsið nema með
þeim. Ef þú ert ekki ennþá komin(n) með lyklaspjald þá þarftu að hafa
samband við Himma eða Gerard.
Ef þú ert ekki heldur búin(n) að sækja um lyklaspjald þá þarftu að
senda mynd í tölvupósti til gjaldkeri <hjá> fbsr. is eða
koma henni með öðrum leiðum til Himma. Upplýsingar gefa Himmi í síma
863 6566 eða Gerard í síma 552 8063.
Þriðjudagar í vetur!
Hvað er þú að gera í vetur? Taktu frá alla þriðjudaga og hafðu þá sem Flubba-daga. Þéttskipuð dagskrá í allann vetur, fullt af lífi og mannskap og það vantar bara þig.
Hlaup hefjast klukkan 19, skemmtiskokk og lengra. Klukkan 20 verður stjórn með verkefnalista yfir það sem þarf að gera í vetur varðandi húsnæði, skemmtanir, fjáraflanir, æfingar og annað.
Sjáumst næsta þriðjudag og alla þriðjudaga í vetur!
Fylgist með dagskránni!
Rétt
er að taka fram að nýliðar sem og félagar geta alltaf kynnt sér
viðburði framundan í dagskránni hér á vefnum. Undir hverjum og einum
dagskrárlið er að finna nánari upplýsingar um þá og þar eiga vera svör
við flestum þeim
spurningum sem kunna að vakna þegar fara á að undirbúa þátttöku í
viðburði. Það er því ekki vitlaust t.d.
fyrir þá sem eru að fara um
helgina
að kynna sér hvað er að
gerast og hvað þarf að hafa með. Þegar smellt er á viðburð í dagskránni þá birtist lítill gluggi og
iðulega er þar að finna nánari upplýsingar, líkt og sjá má hér.
Fagnámskeið í fjallabjörgun
Fagnámskeið í fjallabjörgun verður haldið á Gufuskálum dagana 28. sept. til 3. okt. eða frá fimmtudegi til þriðjudags. Skráning stendur yfir og þau sem áhuga hafa geta haft samband við Kjartan í síma 693 9317 eða í tölvupósti á utkallsflokkur <hjá> fbsr. is.
Búnaðarkaup
Núna stendur til að endurnýja þann einstaklingsbúnað sem sveitin á, eða "útkallsbúnaðinn", eins og hann er kannski oftast kallaður. Nýliðum og félögum gefst kostur á að hoppa á vagninn og versla sér búnað með magnafslætti. Panta verður í síðasta lagi 29. september!
Búnaðurinn sem stendur til að kaupa eru ýlar, skóflur, hjálmar, snjóflóðastangir, klifurbelti, gönguaxir, blikkljós, ísskrúfur og liðbroddar. Einnig á að athuga með að kaupa tjöld. Sem fyrr er þessi búnaður ætlaður sem varabúnaður þegar fólki vantar eitthvað upp á sinn búnað í útköllum.
Félögum og nýliðum gefst kostur á að vera með í magninnkaupunum. Hægt er að kaupa allan pakkann sem var hér upp talinn eða hluta af honum. Þá er einnig hægt að biðja um ýmsa hluti sem ekki eru á listanum, svo sem línur, karabínur eða áttur. Tegund búnaðarins liggur ekki á hreinu fyrr búið er að velja birgjann en væntanlega verður í mörgum tilvikum hægt að velja úr einhverjum tegundum.
Skila verður inn pöntun á búnaði í síðasta lagi 29. september. Stefán Þór tekur þær niður. Hægt er að hitta á hann flest þriðjudagskvöld niðri í sveit, eða henda til hans línu á stefanthorsson < hjá > gmail. com.
Áætlað er að búnaðurinn verði kominn í hús um miðjan nóvember, en afhendingarhraðinn ræðst af ýmsum þáttum.
Verklegt ísklifurnámskeið
Helgina sjöunda til níunda október 2005 fóru nýliðar í B2 í verklegt námskeið í ísklifri í Sólheimajökli
Myndir og frásögn – Matti Zig
Ferðin hófst á föstudeginum þegar lagt var af stað upp úr kl. 20. Það var ákveðið að tjalda til að laugardagurinn myndi nýtast sem best og svo er líka svo gott að sofa í tjaldi.
Það var vaknað um kl. 7:30, nesti útbúið fyrir daginn og morgunverður snæddur. Námskeiðskennararnir mættu svo klukkan níu, en það voru hinir fræknu spotta- og klifurfræðingar Bjarni, Haukur og Hilmar.
Veðrið var ágætt, sólin braust fram úr skýjunum og allt leit út fyrir að þetta yrði fínn dagur. Þegar á jökulinn var komið voru broddarnir spenntir undir skóna og undirstöðuatriði í jöklagöngu æfð.
Eins og alltaf þegar fólk prófar í fyrsta skiptið að ganga á broddum voru skrefin dálítið skrýtin, en þegar allir ímynduðu sér að þeir væru með fílaveikina fóru skrefin að vera fagmannlegri.
Þegar við höfðum þrammað dágóða stund inn á jökulinn fundum við ákjósanlegan stað til að æfa innsetningu á tryggingum. Hópnum var skipt í tvennt og allir æfðu handtökin. Þá var komið að því að klifra.
Óhræddir létu nillarnir slaka sér niður í hyldýFyrsta leiðin var nú kannski erfið en áður en við héldum niður af jöklinum var línan færð og nillarnir fengu að spreyta sig á mun erfiðari leið.
Allir komust þeir nú upp en mikið voru þau nú þreytt. Svo var arkað niður, tjöldin tekin saman og brunað í bæinn.
