Sigið í Þríhnjúkagíg

Sigið í Þríhnjúkagíg
maí 2006

Eins og dagskráin gerði ráð fyrir þá fóru B2 og nokkrir inngengnir á laugardaginn í Þríhnjúkahelli, eða Þríhnjúkagíg eins og hann er kannski oftar kallaður.

Lagt var af stað kl. 10 og var fyrsti maður kominn niður kl.13:20
svo komu hinir niður koll af kolli, samtals átta manns. Þegar allir
voru komnir niður var ákveðið að klöngrast alla leið niður á botn. Að
vísu þurftum við aðeins að leita að réttu leiðinni en hún fannst að
lokum og allir gátu barið augum strompinn, sem er þó engin strompur því
hann nær ekki upp á yfirborð. Ekki hef ég jarðfræðilega skýringu á
þessu fyrirbrigði en þetta er eins og einhver hafi ætlað að bora gat
upp á yfirborðið en hætt í miðjum klíðum. Þríhnjúkagígur er af
jarðfræðingum talinn vera stærsta hraunhvelfing í heimi og er 130
metrar á dýpt. Hallgrímskirkjuturn er 74,5 metrar á hæð, þannig að hæð
þessa hellis slagar hátt í tvöfalda þá hæð.

Svo tók við ferðin upp og þar gekk á ýmsu. Fyrstir fóru Hjörtur og
Magnús (snjóbílakall) og á eftir þeim fóru Viddi og Heiða Jóns, 
Hjörtur lenti í einhverju basli með handjúmmaran sinn og fyrir vikið
þurfti Viddi að húka á línunni fyrir neðan hann í smá tíma. Þegar tveir
fyrstu voru kominr upp fóru systurnar á sitt hvora línuna og þá fyrst
fór að færast spenningur í ferðina. Þegar Ólöf var komin í  svona 20
metra hæð, opnaðist brjóstjúmmarinn hennar og gat hún með engu móti
komið línunni aftur í. Það fór aðeins um mannskapinn sem beið niðri á
botni. Ég var að leggja af stað til að hjálpa henni þegar hún kallaði
og sagðist vera búinn að koma prússik á línuna og hefði tekist að koma
línunni aftur í brjóstjúmmaran. Það var nú mikill léttir.

Nú var Evvi kominn á hina línuna og var að ná Ólöfu þegar hún, með
einhverri óútskýranlegri kænsku tekst að flækja prússikbandi í
brjóstjúmmarann og getur ekki losað það. Í sameiningu reyna þau að losa
flækjuna en tekst ekki. Var þá brugðið á það ráð að fá brjóstjúmmara,
karabínu og sling að ofan og skipti Ólöf um línu og skildi sinn júmmara
eftir á hinni línunni. Þá var bara einn eftir og var sá kominn upp um
kl. 21 og hafði verið niðri síðan kl. 13:20. Mikið var nú gott að
komast upp úr þessari holu og lofar undirritaður, sem hefur farið
þrisvar í hellinn, að þetta hafi verið í síðasta skipti sem hann fer
þarna niður.

Svo var gengið frá og brunað á "Stælinn" og slafrað í sig feitum
hamborgurum og nautasteikum og að lokum var farið niður í sveit það sem
gengið var frá búnaði. Einhverjir jaxlar í hópnum létu sig hafa það og
mættu í partý hjá B1 og hafa ábyggilega uppskorið aðdáun þeirra fyrir
afrek dagsins.

Myndir og texti Matti Zig

 

{zoomcat catid=2}

Skildu eftir svar