Aðalfundur Flugbjörgunarsveitarinnar Reykjavík verður haldinn þriðjudaginn 26. maí á Flugvallarvegi 7 og hefst fundurinn kl. 20:00.
Fráfarandi stjórnarfólk munu grilla pylsur frá kl. 19:00. Kaffi og með því í hléinu.
Samkvæmt lögum FBSR skal á þessum fundi kjósa formann og tvo meðstjórnendur auk eins félaga í siðanefnd, tveggja til skoðunarmanna reikninga, tveggja í uppstillingarnefnd og tvo trúnaðarmenn nú í ár.
Hægt er að hafa samband við uppstillingarnefnd FBSR vilji fólk bjóða sig fram í embætti en einnig má bjóða sig fram á fundinum sjálfum. Í uppstillingarnefnd eru Þorsteinn Ásgrímsson og Ragna Lára Ellertsdóttir.
Dagskrá aðalfundar, sbr. lög FBSR:
- Formaður setur fundinn, en fundurinn kýs sér fundarstjóra og fundarritara.
- Fundarritari fer yfir helstu mál frá síðasta aðalfundi og athugasemdir ef einhverjar eru.
- Skýrsla stjórnar.
- Ársreikningur lagður fram til samþykktar.
- Inntaka nýrra félaga.
Hlé.
- Lagabreytingar.
– Engar lagabreytingartillögur liggja fyrir fundinum. - Tillögur sem borist hafa kynntar og bornar undir atkvæði
- Kosning stjórnar.
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
- Kosning tveggja í uppstillingarnefnd.
- Kosning tveggja trúnaðarmanna sem starfa skulu sjálfstætt.
- Kosning eins félaga í siðanefnd til tveggja ára og stjórn kynnir val sitt á oddamanni (félagi eða utan sveitar).
- Önnur mál.
